Ferðasaga klósetts



Í nótt sem leið hafði ég hrikalegar draumfarir. Vaknaði kl. 03:57 eftir mikinn hasar þar sem ég hafði meðal annars kýlt Jóa Þorsteins, flúið undan lögregluþyrlum, fangelsisvörðum, glæpagengi og læðst um þak á stóru hóteli sem var einnig fangelsi. Ég las góða stund áður en ég sofnaði aftur og bjó mig undir betri drauma með blóm í haga.

Þá var ég allt í einu mættur á Borgir (skólann) og var á spjalli við Dóra. Alltaf gaman að hitta Dóra en nú hafði helvískur bruggað mér launráð. Ég sagðist þurfa að fara að skíta og hann sagðist ætla að koma með mér og einhverra hluta vegna (kannski vegna þess að þetta var draumur) fannst mér það ekkert athugavert. Ég sest niður og fer að hægja mér og við spjöllum um daginn og veginn. Í því opnast allt í einu hurðin og einn prófessorinn hérna í húsinu gengur inn og tekur andköf, spyr mig hvurn djöfulinn ég sé að gera. Þá átta ég mig á því að ég sit í annari lyftunni sem er hér í húsinu. Dóri hafði sem sagt fært klósettið inn í lyftuna og mikið af fólki fylgdist með mér þar sem ég dröslaðist með klósettið frekar lúpulegur út úr lyftunni. Þetta var mikið trikk og bellibrögð.

Skömmu síðar er ég staddur með þetta sama klósett í pappakassa (var ekki búinn að tæma það, gæti skipt máli) og burðast um með það alsáttur í einhverju fjallaþorpi á Ítalíu. Perla gamla er með mér, við böðum okkur í sólinni og hún skoppar glaðbeitt í stórum sveigum fyrir framan mig og klósettið mitt eftir hlykkjóttum malarstígum. Við förum út fyrir mesta þéttbýlið og lendum inn á kornakri. Skyndilega birtist eitthvað sem líkist elg og perla fer að gelta eins og hún eigi lífið að leysa. Þá kemst ég að því að þetta er einhverskonar drápselgur, blanda af elg og belju með hroðalegar vígtennur. Fleiri dýr bætast nú í hópinn og eftir að hafa líka séð venjulegan elg, villisvín og fleiri dýr er mér hætt að lítast á blikuna. Drápselgurinn leggur til atlögu og ég hleyp eins og ég eigi lífið að leysa í gegnum þykkt kornhafið og upp að hárri gaddavírsgirðingu og hendi klósettinu yfir. Þegar ég er kominn upp girðinguna og búinn að festa mig í gaddavír næ ég í framlappirnar á tíkinni sem er að lenda í gini ófreskjunnar og dreg hana yfir. Við erum nú stödd á einhverri einkalóð auðjöfurs og nú fer öryggiskerfið í gang með blikkljósum og sírenum. Þetta endar svo allt með því að ég er handsamaður með þetta klósett og hundinn inni í stórri villu af ítölsku lögreglunni.
Nú þarf ég bara að finna einhvern sem kann að ráða í drauma.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Hi, look here
Halldór sagði…
Hahahaha snilld. Þarf að gera þetta einhvern tímann.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap