Fréttir af veður og gróðurfari


Góðan daginn gullin mín.


Ég veit ekki hvort að það sé neitt tilefni til fréttaflutnings í dag enda hefur afskaplega fátt á daga mína drifið. Þá getur maður, í staðinn fyrir að sleppa því að blogga hafið innihaldslitlar lýsingar á veður og gróðurfari. Þetta er svona ekki ósvipað innihaldslausum samræðum Íslendinga og Norðmanna þegar þeir hitta fólk á förnum vegi. Þeir eru ekkert frábrugðnir Íslendingum að þessu leiti. En sem sagt, hér eru akrar grænir og í gær var 10°C hiti. Niðurstaða mín eftir þessa dvöl er sú að hér er aldrei neitt veður. Bara misbjart sem er ógeðslega frábært.


Fór í gær og drap þorsk sem hafði gengið í gegnum lyfjagjöf. Lamdi þá í hausinn með stöng, krufði, kyngreindi og viktaði kynkirtlana. Gekk svo með tárin í augunum út að tunnu og velti lokinu af. Upp steig fýla af rotnandi fiski og lýsi. Síðan láku þeir líflausir einn af öðrum ofan í hafsjó brostinna vona bræðra sinna sem höfðu bara þráð hafið. Tár lak niður kvarm, sleppti takinu og geislar sólar sundruðust í því þar sem það féll ofan í grútinn og blandaðist blóði bræðra minna. Undir hljómaði tregablandinn söngur Janis Joplin úr iPodinum mínum, "Bye Bye Baby, baby goodbye. Bye baby, baby bye bye".

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Blessaður Bjarni

Ferðu heim um jólin? Það fer að koma tími á kaffibolla og spjall! Við verðum heima frá 16.des og allan janúar. Það væri gaman að heyrast ef þú verður eitthvað á landinu?
Þóra og Örvar Edinborg
Bjarni sagði…
Já sæl verið þið. Ég verð ekki heima um jólin en er væntanlegur í janúar. Nákvæmari dagsetningu veit ég ekki að sinni. Hljómar vel að hittast yfir kaffi og ég reyni að hafa samband
Nafnlaus sagði…
rólegur
Nafnlaus sagði…
Búbb.. hver teiknaði þessa mynd af þér ?
Spilamann...
Bjarni sagði…
Ég gerði það nú reyndar sjálfur enda yfirburðar mikill egóisti.....

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap