Vaknaði óþarflega seint í morgun og var kominn á bömmer áður en ég náði að koma mér í inniskó og hella uppá. Fljótlega fór ég að reka augun í ósamræmi milli klukkna og eftir ítarlegar rannsóknir og langar yfirheyrslur yfir sambýlisfólki mínum fékk ég þetta á hreint. Kóngstytturinn hefur breytt yfir á vetrartíma og þannig gert heiðarlega tilraun til að færa mig nær minni lífræðilegu klukku. Þetta er mjög jákvætt en veðrið sem við fengum með þessu er mjög subbulegt. Finn ekki neitt í símaskránni sem heitir Kongelige klage linen eða eitthvað svoleiðis þannig að maður verður bara að kyngja þessu. Samt svolítið skrítið til þess að hugsa að einhver karl í silkislopp að éta vínarbrauð breyti klukkunni svona bara ef hann er í stuði.

Fékk svo tölvupóst í morgun sem ég veit ekki hvernig ég á að túlka. "Nice to meet you HA030752 (netfangið mitt) stop worrying, she will stay if you enlarge your penis" Ég þarf að komast að því hver "she" er því ég vil ekki missa hana sama hvaða brögðum ég þarf að beita. Set meira að segja inn þessa væmnu mynd til að missa hana ekki

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Sæll Bjarni minn. Mér finnst myndin af laufblöðunum frábær. Varðandi klukkuna, er þá ekki bara klst mundur á okkur ?
Kv. M
Bjarni sagði…
Jú mikið rétt, nú munar bara klst. Tók myndina um daginn hérna í haustblíðunni. Nú hefur veðrið skánað aftur og er mjög gott. Myndin fer reyndar ágætlega við nýja útlitið á síðunni held ég.

Sonur

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap