Ufsi var það heillin

Jæja þá hefur maður gerst svo frægur að éta ufsa. Ég verð víst að játa heimsku mína því þessi ufsi var ekki framreiddur í tómat og kakósósu heldur tómat og kókóssósu. Það fyrra hafði samt verið meira spennandi. Ég ákvað að gera þetta með trompi og setti Sigurrós í botn á meðan ég renndi þessu niður. Indversk sósa, ufsi, baunabelgir, hrísgrjón og Sigurrós. Þetta byrjaði rólega en máltíðin náði miklum hæðum í lokasprettinum í laginu Glósóli og þetta small með miklum bravör. Hvort það var þessi indverska sósa með slatta af hvítlauk, Sigurrós eða bara staðreyndin að ufsi sé fínn til átu veit ég ekki. Ég er allavega saddur núna og get alveg hugsað mér að éta ufsa aftur. Kem hér í lokin með hugmynd af ufsarétt sem ég skora á Ragnar að prófa þar sem hann var alinn upp á ufsa.

Ufsi með natrónsmjöri og negulnöglum, borinn fram á radísubeði með rabbabarasultu og hjartarsalti. Með þessu ætti að drekka landa í pepsi max eða jólaglögg.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap