Svíþjóð, land sælgætis, lyfja, áfengis og kaffis
Guð sé lof að það sé ekki mikið lengra en 1,5 klst akstur til Svíþjóðar. Gott er að skella sér yfir mæri landa, draga upp seðla og spreða í kaffi og aðrar nýlenduvörur. Var einmitt að koma úr slíkum leiðangri sem skilaði allavega miklum árangri í að losa mig við alla lausafjármuni. En nú á ég nóg brauð og kaffi fyrir rússneskan vetur og get horft björtum augum á framtíðina. Mér hlýtur að líða svipað og þegar Bubbi var með skápana fulla af kóki og öðrum yndislegum fíkniefnum.
Ég keypti mér t.d eitthvað fæðubótarefni sem inniheldur m.a Methylxanthine, Vinpocetine, Vincamine, Vinburnine, Glycocyamine, L- Citrulline Malate, L- Citrulline AGK, Magnesium Glycerophosphate og síðast en ekki síst Potassium Glycerophosphate og smá dass af Glycerol Sterati. Nú tel ég það víst að ég fríkki eitthvað við þetta og var einmitt að lesa það að þetta getur valdið kröftugum niðurgangi. Ég ætti því víst að hafa eitthvað að gera. Get lesið næringarfræði fiska á klósettinu.

Ummæli
Vona að melting fæðubótaefna muni ganga vel. Ég treysti því að fá nákvæmar lýsingar af því ferli öllu saman hér á síðunni.
kv Ofurherbinn
Pápi
PS ertu að tefla við páfann?