Tími til að jarma
Ég ætla að byrja á því að setja hér inn nýtt heimilisfang og símanúmer hjá mér hérna í Noregi. Vinir og vandamenn geta því farið að senda mér gjafir og mega gjarnan hringja daglega til að heyra í mér hljóðið. Hringið samt helst ekki eftir kl.21 að íslenskum tíma.
Bjarni Jónasson
Postboks 1342
1432 Aas
Norge
Sími +47 46817025
Það hefur svo sem ekki margt drifið á daga mína síðan ég skrifaði síðast. Þó lenti ég í óhemju helvítis vandræðum með að koma mér út úr miðbæ Oslóar. Ég held að hugmyndin sé að lokka fólk inn í miðbæinn og sleppa þeim aldrei út aftur. Það er ekki nóg með að umferðin hafi verið mikil heldur keyra sporvagnarnir í umferðinni á miðjum götunum, allt fullt af einstefnum, maður veit aldrei hver á réttinn og það er hreint með ólíkindum að ég hafi ekki verið handtekinn fyrir það hvernig ég keyrði þarna. Maður var eiginlega alltaf á flótta undan þessum sporvögnum og var glaðari en sólborgari í pulsupartýi þegar ég fann undirgöngin út úr borginni.
Á eiginlega að vera staddur í Osló núna með hinum nemunum en hafði nóg annað að gera. Sé þó svolítið eftir því að hafa ekki farið með. Varð bara að koma mér í samband við umheiminn og komast í tölvupóstinn. Fyrstu dagarnir eru eiginlega skipulagðir þannig að það er engin tími til að koma sér fyrir og sækja einhverja þjónustu. Ætla svo á eftir að leita uppi einn prófessor og reyna að komast á veiðar í sátt og samlindi við menntasamfélagið í næstu viku. Var að gramsa í einhverjum kössum í gær og reyna að finna snúru fyrir myndavélina en ég bara finn hana ekki. Síðan er eitthvað gat á tölvunni sem kortið úr myndavélinni passar í en það gerist ekkert. Myndir verða því að bíða en um sinn.
Já eins og ég sagði þá er þessi íbúð kapítuli út af fyrir sig. Þetta er einn langur gangur með 6 herbergjum og einu klósetti og einni sturtu. Ekkert sjónvarp er í setustofunni, engin örbylgjuofn, engin kaffivél, engin brauðrist og húsgögnin eru þannig á sig komin að ef maður færi með þetta upp í Sorpu þá væri ekki nokkur maður sem gæti hugsað sér að taka þetta með sér heim. Ef ég vil þvo þvott þá kostar hver vél 300kr/isl og ég þarf að borga inn á eitthvað þvottakort. Ég hef ekki rekist á þessar þvottvélar neinstaðar. Jæja þá er maður búinn að grenja nóg í bili og ég bið að heilsa öllum
bj

Ummæli