Kläshängare
Jæja þá er þessi dagur að kveldi kominn hér í Ásverjabæ og hef ég setið á fyrirlestri í allan dag um cultural awareness. Komu einhverjir 2 prófessorar frá öðrum háskóla og héldu fyrirlestra sem voru bara nokkuð góðir þ.e fyrir hádegi en síðan var maður orðinn alveg stjarfur í lokin. Síðan var höfð sýnikennsla í því hvernig á að skúra gólf í Noregi (með einhverri sósíalista moppu) og hvernig búið er um rúm í Noregi. Setja lak, yfirdýna á að vera undir lakinu, setja koddaver á koddann og sængurver utan um sængina. Síðan er talið vera ágætt að þvo sængurfötin ca. á 2 vikna fresti. Þessi fyrirlestur var haldinn að ósk einvhers nemanda og þá sér maður hvað þetta er ólíkur hópur og kannski einhver ástæða fyrir þessu cultural awerness hjali. Ég er að spá í að spyrja hvernig maður fer í sturtu í Noregi.
Eftir þetta skrapp ég til Ski sem er næsti bær og verslaði fyrir augun úr upphæðir í stórri verslunarmiðstöð sem er þar. Allt frá herðatrjám og landakortabókum til próteindufts og lýsis. Notaði að sjálfsögðu tækifærið og reyndi að æfa mig í norsk/sænskunni minni og gekk það bara fínt. Annars er mest talað svahílí hér heima við (ekki ég) en nú um helgina koma víst 4 Norðmenn á ganginn til okkar. Þá getur maður heilsað þeim "caribou" sem þýðir velkominn á svahílí. Sagt þeim svo að halda kjafti á íslensku.
Jæja ég veit ekk hvort einhver hafi tekið eftir því en ég bætti inn myndaalbúmi hér á síðuna og hef sett inn 3 möppur. Þar sem ég er svo ægilega glaður að vera að fara á veiðar í Svíþjóð í næstu viku er ég líka að spá í að setja inn nokkrar myndir frá Bockapremier í fyrra. Þó hafa sjálfsagt flestir séð þær sem hafa áhuga á veiðum. Síðan vil ég benda pabba og Hafrúnu á myndirnar frá Fiskebackskil og Grundsund þegar ég heimsótti Þolla. Ef þau hafa ekki komið þangað þá er það alveg þess virði ef maður er að þvælast í kringum Gautaborg og veðrið þokkalegt.
Kveðja, Bjarni

Ummæli
Pápi