02.08.07

Jæja þá eru þau gömlu komin heim og maður ekki lengur einn í kofanum. Þau komu reyndar bara í gær og ég eyddi því miðvikudeginum í sófalegu enda veðrið ekkert sérstakt. Það er svo sem ekkert hægt að kvarta yfir veðrinu þessa stundina, ca 20°C hiti og skýjað. Ég og pabbi erum að fara í veiðibúð, "viagrabúð" eins og pabbi kallar það. Það veitir ekki af að fá smá búst eftir allt golfið og ná testósterónflæðinu í gang. Á köflum veit maður vart hvers kyns maður er lengur eftir að hafa verið klæddur í pólóbol með golfskó á fótunum dag eftir dag. Nú fer maður órakaður í byssurekkann og synd að maður hafi farið í sturtu áðan.

Þau leggja svo af stað upp til Gautaborgar á morgun og ég verð að taka ákvörðun fljótlega hvort ég keyri í samfloti með þeim og hitti Þolla eða hvort ég verði eftir. Hildur systir ætlar víst að koma með þeim til baka og hugmyndin að við snæðum öll saman á laugardagskvöldið. Jæja ég læt ykkur (mömmu;) vita hvernig þetta fer allt saman.

kv.bj

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Já Bjarni minn eins gott að leyfa mömmu gömlu að fylgjast með. Allt gott hér nema að ég nenni ekki að vinna. Langar að ganga meira og njóra sumarsins, en að vinnudegi loknum er orkan ekki mikil. MHE er með pokémon æði, annars bara hress.Eitthvað svipað með HGE sem er búin að panta sér pokémon spil á e-bay. Jæja Bjarni minn njóttu lísins (en farðu varlega) Knús og kossar frá öllum í Brekku. þín M
Nafnlaus sagði…
Hæ þetta er Hildur vonandi er gaman en ef ekki komdu þá mjög fljótt aftur því ég sakna þín mjög mikið.Getur þú kanski látið mig inná MSN hjá þér ég heiti:ishildur_sunny@hotmail.com!
jæja bless bless kossar og knús Hildur!
Nafnlaus sagði…
Gaman að heyra að þið skemmtuð ykkur vel á Stónes. Okkur langar að kíkja á heimasíðu skólans sem þú ert að fara í, hver er slóðin ?
Kv frá öllum í Brekku.
Bjarni sagði…
Gott að vita að einhver saknar manns;) Ég sakan ykkar líka. Ég set þig inn á msn-ið þegar ég verð kominn í mína tölvu í Noregi.
Bjarni sagði…
Slodin er www.umb.no

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap