Golfið byrjað
Jæja þá erum við kumpánar búnir að taka skrens á einum vellinum hérna rétt hjá. Hann var eiginlega bara ólýsanlega flottur og langt ofan við það sem maður þekkir að heiman. Spiluðum með einhverjum sænskum hjónum og ég var svo stressaður í byrjun að ég lamdi stanslaust bara beint í jörðina og dreif varla fram úr kvennateigunum. Þetta var nú að koma aðeins í restina og verður vonandi betra á morgun.
Ég á enn alveg eftir að gefa mér tíma í að finna snúru fyrir myndavélina og henda inn myndum. Við erum nefnilega huggulegri heldur við höfum nokkurntíman verið og verðum eiginlega bara að leyfa einhverjum að njóta þess með okkur. Ætlum að vakna í bítið og því best að fara að leggja sig.
Kveðja, Stefán og Bjarni

Ummæli