Allt við það sama
Eru engar fréttir ekki betri en slæmar fréttir? Það er allavega ekkert að frétta af okkur félögunum. Við erum við sama heygarðshornið, að spila golf, éta og skíta. Fórum að spila á stað sem heitir Bosjökloster í dag og toppaði það sennilega allt sem við höfum séð í þessari ferð. Völlurinn liggur á nesi við stórt vatn, umlukinn skógi og þar er einnig að finna gamalt klaustur og kastala. Fórum 18 holur í glimrandi sól og blíðu og rétt sluppum við rigningu. Átum svo besta borgara sem við höfum smakkað í klúbbhúsinu á eftir. Vorum að enda við að éta einhverja gæsaafganga frá því í gær og erum að spá í að kíkja á dömurnar hérna í bænum á eftir. Stebbi fer svo heim á mánudag kl.14 og ég dunda mér sjálfsagt við að þrífa kofann áður en pabbi og Hafrún koma heim á þriðjudag.
Kveðja, S&B
Kveðja, S&B
Ummæli
Bestu kveðjur úr veðurblíðunni heima.
Kv. M