Aalborg
Jæja jæja þá erum við kappar mættir í borg dauðanns, Álaborg. Ekki höfum við enn rekist á ákavítisverksmiðjuna enda mættum við seint. Stigum út úr lestinni kl. 21 að staðartíma og vissum ekki hvað sneri upp eða niður í þessari borg. Fundum stelpur sem sögðu okkur leiðina á sjúkrahúsið þegar við spurðum um hótel eða svefnpokapláss. Þar sem við erum flottræflar dauðanns erum við nú staddir á Hotel Phönix og höfum það gott. Reyndar var allt uppbókað á farfuglaheimilinu. Átum einhverjar óþverra pylsur og skelltum okkur á dimma hverfiskrá. Þar inni var ekta danskur lýður, vel drukkinn og allir rauðir í framan. Ekki amalegt með Kim Larsen og Abba í botni maður á mánudagskvöldi frá helvíti. Einn gaurinn var meira að segja farinn að berja spilakassa.
Annars gekk ferðin ljómandi vel og við leggjum af stað til Hanstholm að sækja bílinn kl 08.00 í fyrramálið. Förum síðan aftur til Álaborgar og ætlum að taka 18 holur. Keyrum svo niður úr seinnipartinn á morgun og gistum sennilega í Óðinsvéum, Kaupmannahöfn eða förum alla leið til Svíþjóðar. Hvur veit? Stebbi biður að heilsa en hann liggur flatur undir sæng og lepur Tuborg grön og étur snakk. Ég á aftur í vandræðum með mig er að verða búinn að tæma úr einum poka af fleskesvær sem er djúpsteikt svínafita. Setjum inn myndir fljótlega ef við finnum snúru fyrir myndavél.
Hilsen, Bjarni og Stefán

Ummæli