Styttist í Noregsferð

Jæja þá er að verða nokkuð stutt í að maður yfirgefi frón um sinn og nokkuð víst að maður verður á hvolfi þangað til. 23. júlí flýg ég frá Akureyri og þarf að vera farinn með bílinn minn til Seyðisfjarðar 18. sama mánaðar (hann fer með Norrænu). Svo er bara að tæma íbúðina í kvöld og eyða því sem eftir er af tímanum hér á skrifstofunni og niðri á labba.

Það verður drullu fínt að komast út og Stebbi verður með mér þarna í einhverja dag, bæði í Danmörku og Svíþjóð. Búnir að fá húsið lánað hjá pabba og Hafrúnu og svo er bara að spila golf. Að sjálfsögðu mun ég ekki svíkja lesendur mína og flytja mergjaðar golffréttir hér á blogginu, setja inn myndir, skrifa skor og breytingar á forgjöf. Ætli maður endi svo ekki með því að keyra upp til Gautaborgar og hitta Þolla og frú. Skólinn byrjar svo 6. ágúst með einhverri nýnemaviku og 13. sama mánaðar er fyrsti skóladagur. Ég reyndar verð að stinga af til Svíþjóðar að veiða þann 15. en við sjáum til

Gott í bili.....

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap