Pirr

Þess dagur er búinn að vera einhver mesti pirrdagur hjá mér í langan tíma. Það væri allt of langt og leiðinlegt að telja upp hversvegna, en ég hef eytt megninu af honum í að vorkenna mér. Eftir að hafa étið upp úr einum salatbakka úr Hagkaup og hugsað um hversu erfitt líf mitt er í dag ákvað ég að labba aðeins út, taka einn hring hérna á planinu og fríska mig við.

Þegar ég var kominn út á plan fann ég brotinn penna í mölinni sem ég tók upp. Á honum stóð "Jesús er lausnin fyrir þig". Nú er það bara spurning hvernig ég næ sambandi?

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Það er ekkert gott um þig eða þinn persónuleika að segja... megi liverpool selja gerrard svo þú kynnist sannri sorg og óhamingju eins og aumingja ég
Bjarni sagði…
Ég elska þig líka Raggi minn og samhryggist innilega vegna sölunnar. Hlakka samt óhemju mikið að sjá hann við hlið Eto ef það verður raunin

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap