Góðan dag


Jæja nú er maður mættur í ruglið og búinn að koma sér upp svona síðu. Hér getur fjölskylda mín komið inn og fengið fréttir af mér þegar ég verð í Noregi, enda ólíklegt að ég eigi eftir að nenna að tala við þau í síma. Hef ekkert að segja núna en set þetta inn til að sjá hvernig þetta lúkkar á síðunni minni.

Kveðja, Bjarni
Ps. Varð að prófa að setja inn einhverja mynd líka. Myndin er af Ragnari vini mínum og náði ég henni þar sem hann var að þrífa sameignina. Þetta er verðmætara heldur en að ná mynd af keldusvíni drepa fálka.

Ummæli

Arnþór sagði…
Geymir þú ekki örugglega frumritið af myndinni af Ragnari í hvelfingunni hjá seðlabankanum?
Langar að lýsa yfir ánægju með að þú skulir vera farinn að deila fróðleik þínum og hugsunum með okkur sauðsvörtum almúganum.
Bjarni sagði…
Já þakka þér fyrir. Þetta er góð hugmynd með Seðlabankann og ég kem til með að hugsa málið. En sem komið er geymi ég nú bara afrit af þessu í skókassa með nokkrum myndum af Larry Bird, óopnaðri spurflösku og eiginhandaáritun Ómars Ragnarssonar.

Maður kemur vonandi til með að deila einhverri visku hérna inni en en sem komið er veit eiginlega enginn af þessari síðu (kannski fyrir bestu).
Arnþór sagði…
Hvað viltu fá fyrir Spurflöskuna? Ég er líka til í að skipta við þig á svefnsófa, lítið notuðu dagblaði og hamstrabúri.
Bjarni sagði…
Ok mér finnst það sanngjarnt. Ég læt þig líka fá lítið notað Zalomon húfuband.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap