Span
Mamma kíkti í kvöldmat til okkar í vikunni. |
Þessi vika er búin að vera á hvolfi eins og við var að búast og ég er ekki einu sinni byrjaður að taka mig til fyrir Kanarí. En helgin er eftir. Mesta stressið var samt með TCR-ið mitt sem ég þurfti að fara með í Útisport út af biluðum bremsum. Það vantaði varahluti en Vilberg reddaði þessu með að taka varahluti af gravel-hjólinu sínu. Ég krossa fingur að þetta haldi allt saman. Mjög óþægilegt að fara í svona ferð og vera ekki viss um að allt sé í lagi.
Eftir að algera bugun í æfingunni á miðvikudaginn þá náði ég að snúa hlutunum við í gær. Þá var 5x1mín sprettir, nokkuð þétt æfing sem mér var búið að kvíða fyrir. Lykillinn af því að tækla hana var gríðarlegt fiskát, hrísgrjón, súrdeigsbrauð, magnesíum, vítamín, góður svefn og hvíld. Ég fann alveg fyrir þreytunni sem fylgir þessum sprettæfingum en ég var miklu sprækari en deginum áður.
Í dag er 1 klst. recovery æfing og svo bíða mín 6 klst. um helgina. Þá fæ ég 2 daga til að koma mér til Kanarí og svo taka við 4-6 klst. dagar þar úti. Þar verður haugur af hjólurum frá Íslandi, Hafdís, Ingvar og fullt af lið úr Tindi. Við kannski rottum okkur eitthvað saman við þau.
Ummæli