Meira grill
Vikan á Training Peaks |
Eins og ég held að ég hafi verið búinn að koma inn á þá var ég eiginlega frekar að vonast eftir langri viku með slatta af endurance en við eigum greinilega eitthvað ógert í þessum VO2 max æfingum. Ég hef ekki verið í miklum samskiptum við Ingvar en fór eitthvað yfir síðustu viku og segist sjá að VO2 maxið sé að hækka hjá mér. Ef allt gengur eftir á það að hífa FTP-ið mitt upp næst þegar við tökum test.
VO2 max, or maximal oxygen consumption, is a measure of the maximum amount of oxygen that an individual can utilize during intense exercise. It is often used as an indicator of aerobic fitness and endurance capacity. In cycling, VO2 max specifically refers to the maximum rate at which a cyclist's body can take in, transport, and use oxygen during sustained, high-intensity cycling efforts.
Ef við berum saman þessa viku við síðustu VO2max vikur þá snýst framvindan um að láta mig fara úr 4 mín settum upp í 5 mín (það munar mikið um 1 mínútu á svona miklu afli) og svo kemur ein 30/15's æfing þar sem ég fer úr að taka 3x10 upp í að gera 2x20. Samalagt TSS skor (erfiðleikastig) fyrir VO2 max-vikurnar er líka að hækka hægt og rólega. Þetta snýst alltaf um að bæta aðeins í svo lengi sem maður er að standa undir þessu. Ef maður væri alltaf að gera það sama myndi maður bara staðna.
En æfingalega séð er staðan á mér bara góð. Eftir hvíldardaginn í gær er ég bara að verða býsna góður og tilbúinn í átök vikunnar. Ég er eiginlega betur mótíveraður en í síðustu viku og veit að þessar VO2max æfingar taka einhverntíman enda. Möntrurnar eru, stöðuleiki, þrautsegja og þolinmæði.
Ummæli