Base

CTL skorið mitt (Chronic Training Load/Fitness) er farið að stíga upp aftur eftir haustfríið.

Ég held áfram að moðast í þessum æfingum og er núna í grunntímabili (base season). Eins og ég hef komið inn á margoft þá vill Ingvar að við leitum allra leiða til að auka við æfingamagnið og það verður kannski svolítið undir mér komið að troða inn aukaæfingum. Ég ætlaði mér aldrei að vera kominn svona vel af stað á þessum árstíma en þetta er vonandi eitthvað sem skilar sér í vor. Við verðum búnir að byggja upp góðan grunn, þetta snýst allt um það.

Síðustu vikur hef ég verið að hjóla rúmlega 40 km á dag að meðaltali og ég virðist þola þetta ágætlega- ennþá allavega. Það er helst að þetta taki á andlega og það er ekki alltaf jafn auðvelt að gíra sig upp í að setjast á hjólið í 2 klst., sérstaklega ef erfið æfing er fyrir höndum og nóg af verkefnum í hversdagslífinu. En það þýðir bara ekkert að vera að velta því fyrir sér, bara setja undir sig hausinn og láta vaða. Alltaf gott þegar það er búið. Annar galli er að ég hef þurft að setja ræktina svolítið mikið á hold, eitthvað sem ég ætlaði aldrei að gera.

Æfing dagsins -36 mínútur í threshold.

Æfing dagsins var þröskuldsæfing (threshold) þar sem ég átti að halda mér í 3x12 mín á ca. 245 vöttum. Eftir hræðilega erilsaman dag í vinnunni (og kannski óþarflega spræka æfingu í gær) þá var ég ekki alveg nægilega vel upplagður. Mig langaði til að negla þetta miklu betur. Eins og sést á síðasta settinu þá var ég farinn að leka aðeins niður í tempo og hélt ekki jafn stöðugum vöttum og í fyrri settunum (bleika línan).

Á morgun er mjög róleg æfing í klukkutíma og ég ætla að njóta þess í botn að slaka á. Á föstudaginn er svo killer yfir/undir æfing sem ég hlakka til, þ.e. ef ég verð búinn að jafna mig.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap