Vikuuppgjör

Úr paratíma á laugardaginn.

Þá er sunnudagur að kveldi kominn og ég væri að ljúga ef ég segði að ég væri ekki þreyttur. Ég er eiginlega ekki búinn að stoppa síðan ég man ekki hvenær og hvíldardagurinn minn á mánudaginn fór í smalamennsku (8 km. skokk/labb). Ég er búinn að taka 6 hjólaæfingar á sex dögum sem voru samtals 322 km (54 km/dag síðan á þriðjudag) og ég fór í ræktina í gær og í dag. Þetta voru samtals 12 klst af æfingum.

En þó ég sé þreyttur núna þá er líkaminn s.s. ekkert í algerum mínus. Ég er bara þreyttur á góðan hátt og bara með smá strengi eftir ræktina. Finn reyndar örlítið til í mjóbakinu og ég hugsa að það sé eftir ræktina líka.

Æfingavikan 

Mataræðið hefur verið svona þokkalegt en maður getur alltaf gert betur. En eitt er víst, ég hef ekki verið að halda í við mig í mat því ég þarf minn skammt til að standa undir þessu öllu. Þyngdin á mér er búin að vera stöðug í 66 kg í 2-3 vikur en mér finnst ég samt vera að tálgast aðeins niður. Ég er sennilega að bæta á mig vöðvum í ræktinni og þetta því allt eðlilegt. Ég er alveg rólegur ef ég fer ekki ofar en þetta í þyngd.

Ingvar var að setja inn næstu æfingaviku og núna er mánudagurinn ekki alveg hvíld heldur 60 mínútna recovery á hjólinu. Síðan koma 3 test í vikunni en annars frekar rólegt. Næsta vika er 8,5 klst á hjólinu (7 daga í röð) og svo fer ég örugglega í ræktina um næstu helgi.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap