KIA GULL - Recap
Kominn í mark í KIA Gull. |
Aðeins að kvitta fyrir keppnina í gærkvöldi. Eftir drulluveður í borginni allan daginn var næs að keyra austur fyrir fjall og fá fínt veður þar, 14°C og frekar kyrrt. Þannig hélst það þangað til við vorum búin að keppa. En að keppninni (þetta verður hraðsuða).
Ég kom mér fyrir fremst á ráslínu en lenti svo í vandræðum að koma mér í klítana og datt lengst aftur úr. Það var "neutral" start sem þýðir að við áttum að hjóla á eftir bíl fyrstu kílómetrana og máttum ekki gefa í fyrr en komið var á veginn niður í Flóa. Bíllinn reyndar keyrði býsna hratt og hópurinn var þéttur þannig að ég var ekki nægjanlega framarlega þegar hópurinn gaf í eftir beygjuna. En það slapp og ég kom mér í fremsta hóp aftur.
Eftir þetta komu nokkrar hraðabreytingar þar sem maður mátti hafa sig allan við. Rétt fyrir malarkaflana kom svo lítil aflíðandi brekka og þar missti ég hópinn (ca. 20 - 25 fyrstu). Ég setti undir mig hausinn og þurfti að taka 4-5 mínútur á tæpla 300 vöttum til að ná hópnum en það tókst. En um leið og ég kom í hópinn kom hraðabreyting og nú átti ég ekkert eftir í bili.
Á ráslínu. |
Á malarkaföflunum nálgaðist ég svo næstu menn og hitti Stefán Geir sem vildi fá mig í vinnu með sér. Við unnum vel saman og náðum öðrum gaur sem hjálpaði okkur svo að ná hópi fjögurra annara gaura. Við 7 unnum svo saman til þó 2 hafi svo aðeins dregist aftur úr.
Þegar kom að markinu....... þá bara kom markið. Engar merkingar voru um að markið væri að koma og bara 56 km búnir. Hinir fóru skyndilega í endasprett og ég missti 3 (sem allir voru í mínum aldurshópi) fram fyrir mig.
Niðurstaðan í mótinu var sú að ég var 8 í mínum aldursflokki, 17. í heildina af körlum og 22. í heildarkeppninni af 107 keppendum. Harpa vann sinn aldursflokk eins og alltaf :)
Harpa á palli. |
Þetta var miklu harðari keppni en ég hefði nokkurntíman geta ímyndað mér. Það var mikið at og mikil keyrsla. Það mættu Elite gaurar og þeir gerðu sitt í að sprengja þetta upp og halda uppi hraða. Af þeim 7 sem voru í mínum aldursflokki þá þekki ég bara 2. Ég er svekktur með úrslitin og ætlaði mér meira. Ég ætla að melta þetta aðeins og reyna að átta mig á því hvað ég hefði geta gert betur.
Helstu tölur |
Ummæli