Heim í frostið
![]() |
| Kominn upp klifrið á El Teide. |
Það er sem mig minni að ég hafi ætlað að blogga eitthvað á meðan ég var hérna en það fórst greinilega alveg fyrir. Ég hef ekki fylgst með vinnunni, ekki fylgst með fréttum og ekki nennt að blogga. Ef frá eru taldir samfélagsmiðlar, þá hef ég alveg kúplað mig út, sem var að sjálfsögðu stefnan.
Heilt yfir hefur þetta verið alveg gjörsamlega frábært ferðalag og við hefðum ekki getað verið heppnari með veður. Hitinn fór mest í yfir 30°C en það var á mjög afmörkuðum kafla. Annars var hitastigið að damla í 20 - 26°C sem er alveg perfect til að hjóla í. Ég lenti í smá sólbruna fyrsta daginn og er rétt að ná að vinna mig út úr því núna, meira um það síðar.
![]() |
| Rétt komin heim úr síðasta hjólatúrnum á Tene, í bili |
Ég þori ekki að lofa að ég eigi eftir að hafa tíma til að gera ferðina upp í smáatriðum en það er stefnan. Mig langar að henda inn helstu dagleiðum og skrifa niður minnispunkta til að uppfæra listann fyrir næstu ferð. Þetta er fyrsta svona götuhjólaferð sem ég fer í til útlanda og maður lærði náttúrulega helling á þessu og gerði mistök sem maður vill ekki gera aftur.
![]() |
| Klukkustundir á viku síðustu vikurnar. |
Eins og við var að búast þá bömpaðist æfingaálagið slatta upp á þessum tíma og Garmin er að skamma mig fyrir að hafa gengið of nærri mér. En mér líður frábærlega og mest allur tíminn var á lágri ákefð þó meðalhækkun á dag hafi verið 1833 metrar. Harpa þurfti að passa bakið á sér í þessum brekkum og því fórum við þær frekar rólega. En nú hugsa ég að ég taki 3 hvíldardaga til að ná fram góðri bætingu og taki jafnvel FTP test á laugardaginn til að sjá hvort þetta skili sér ekki.
Núna sit ég við galopna svalahurðina og hlusta á dúfurnar kurra og starfsfólkið á hótelinu þrífa laugina. Harpa er ennþá sofandi og ég fer að pikka í hana svo við getum fengið okkur að borða. Það stefnir í en einn blíðudaginn hérna og það eru blendnar tilfinningar að vera að fara heim úr þessu menningarklóaki vesturlanda (snilldarlega orðað hjá Þolla). Það er helst veðrið sem maður mun sakna og að geta hjólað úti. Get ekki sagt að ég sé spenntur fyrir að koma heim í -100°C frost🥶



Ummæli