Góð helgi
![]() |
| Salat með túnfiski og eggjum annan daginn í röð. |
Helgin hefur verið drullu fín hjá okkur. Ég þurfti að vera með hreindýra-útdrátt í beinu streymi á laugardaginn hérna á Akureyri og börnin fengu því að fara í sveitina til ömmu og afa. Þar sá Halldóra systir um að halda uppi fjörinu með skautaferðum, föndri og allskyns uppátækjum. Hún þreytist ekki á að vera góð við frænda sinn og frænku sem náttúrulega dýrka hana fyrir vikið.
Utan við vinnuna var ég svo bara eitthvað að dunda mér við að ganga frá hérna heima, þvo þvott og skipuleggja mig fyrir ferðina. Þegar ég verð búinn að baða börnin á eftir hugsa ég að ég klári svo bara að henda öllu í tösku sem ég á ekki eftir að nota meira áður en ég fer.
![]() |
| Recovery æfing sem ég tók í morgun. |
Ég fór aðeins fram úr sjálfum mér á lyftingaæfingu á föstudaginn og er búinn að vera frekar strengjaður í lærunum. Ég ákvað því að taka bara mjög rólega æfingu á hjólinu í dag og það var bara mjög fín tilbreyting. Ég hef ekki verið duglegur að taka endurheimtaræfingar en líður alltaf vel á eftir. Ég var á 125 w í tæpan einn og hálfan tíma og einbeitt mér að því að slaka vel á, anda rólega og fylgjast með púlsinum. Hann var ennþá á leiðinni niður þegar ég hætti og var að damla sitthvoru megin við 100 bpm.
Vikan endaði í 7 klst og 15 mínútum, með 2 lyftingaæfingum og 5 klst og 16 mínútum á hjóli. Ég var því frekar að keyra framúr þar sem þetta átti að vera hvíldarvika en álagið var s.s. ekki mikið ef frá er talin lyftingaæfingin sem fór alveg með mig.
Ég hugsa að ég taki eina hjólaæfingu í viðbót áður en ég fer á Tene og svo er lyftingaæfing hjá mér á morgun. Á Tene mun maður svo væntanlega reyna að ná inn slatta af tíma og bömpa upp CTL skorinu sínu (Chronic Training Load). Eftir Tene mun ég væntanlega taka 1-2 hvíldardaga en fer svo að vinna í þriggja daga blokkum sem byrja á intensity æfingum, næst hreshold og enda á löngum endurance æfingum. Passa mig samt að missa mig ekki í gleðinni því það eru ennþá 10 vikur í fyrsta mót og ég ennþá í grunninum (base).
Mataræðið hefur verið upp og ofan. Leyfði mér að éta svolítið af bakaríismat um helgina og gúffaði í mig M&M með hnetum í gærkvöldi og smá snakki. En ég hef líka passað mig að næra mig vel inn á milli með spínatshristingum, tómatdjúsi og eggjum. Ég þarf hinsvegar að bæta vatnsdrykkjuna og minnka kaffið. Alltaf sama sagan.
Í gærkvöldi henti ég í salat með túnfiski og eggjum. Hef aldrei verið mikið fyrir túnfisk úr dós en það er alveg hægt að gera þetta þokkalegt ef maður kryddar þetta smekklega og hefur með fetaost og kannski smá parmesan. Ætla að reyna að muna á stíga á viktina í fyrramálið en ég held að hún sé búin að vera að síga upp á við.


Ummæli