Fín vika í gangi

Ég get fúslega viðurkennt að hausinn á mér er búinn að vera á þessum slóðum alveg síðan við komum heim. 

Nú er ég að hálfnaður inn í frekar erfiða æfingaviku og ég verð að segja að ég er mjög ánægður hvernig staðan er á mér. Mér líður eins og formið hafi „bömbast“ eitthvað upp þarna úti Tenerife. Ég byrjaði vikuna á VO2 max æfingu (110-125% af FTP) og tók svo þunga réttstöðu og uppstig sama dag (mánudag). Í fyrradag tók ég svo 3x10 mínútna threshold æfingu (95-105% FTP) og hún gekk súper vel þrátt fyrir erfiðan dag á undan. Í gær tók ég svo 2 tíma endurance æfingu rólega og í dag er hvíldardagur sem ég ætla að njóta í botn.

Ég skaut FTP testinu sem ég ætlaði að taka í síðustu viku á frest þar sem ég var ekki alveg nógu ferskur en mér líður eins og ég megi ekki bíða með það mikið lengur. Mér finnst ég gæti verið að keyra á meiri ákefð og gæti þurft að leiðrétta sónin hjá mér svo ég sé að fá sem mest út úr æfingunum. Ein vísbending um þetta er að púlsinn hjá mér er farinn að vera lægri við æfingarnar. Sem dæmir var ég að leka yfir í tempo hjartslátt á 175 w fyrr í vetur en núna er púlsinn hjá mér mun lægri á þessari vattatölu.

Warm-up for 10 to 15 minutes and then ride as hard as possible doing an intensive time trial effort for the next ten minutes. Ride the last minute flat out (maximum effort), and sprint the last 20 to 30 seconds. It should now be possible to read the MHR on the Heart Rate Monitor.

Það er stutt vika hjá mér næst þannig ég hugsa að ég skjóti inn einu testi þá og sjái hvar ég stend. Það væri reyndar líka forvitnilegt hjá mér að mæla einhverntíman hámarks hjartslátt en hingað til hef ég bara notað hæstu gildi sem ég hef séð í keppnum og erfiðum æfingum. Max HR test er ekki alveg jafn líkamlega krefjandi og 20 mín FTP test og getur komið í staðinn fyrir stutta intensity æfingu.

Núna sit ég heima og Dagbjört Lóa er lasin. Hún var með 39 stiga hita í morgun og veröldin gjörsamlega hrundi hjá henni. Hún er búin að vera að æfa fyrir skólaleikrit í meira en mánuð og lífið hefur snúist um þetta. Tilhlökkunin að bjóða pabba og mömmu að koma að horfa hefur verið óendanleg. Ég gaf henni hitalækkandi áðan og við ætlum að sjá hvort hún geti farið í skólann rétt fyrir sýningu og staðið sína plikt. Hún kallar ekki allt ömmu sína❤️ 

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Góðan daginn öll

Kylfingur spjall

Negri í Þistilfirði