Ferðauppgjör í vinnslu
Ég var búinn að lofa ferðauppgjöri og ég er í rauninni kominn langt með það. Ég ætla mér að klára það um helgina og henda því hér inn. En það er mjööög langt. Vonandi hefur einhver gaman að því.
Annars er maður bara að reyna að koma sér í gírinn hérna í kuldanum. Ég var mjög sprækur á fimmtudaginn en eftir vinnuna í gær var ég mjög þreyttur og hélt að ég væri að verða veikur. Er að spá í að hvíla bara í dag og taka eitthvað létt á morgun. Ætla að fresta FTP-testinu fram í næstu hvíldarviku.

Ummæli