Ferð til Reykjavíkur

Frá Vilaflor, hátt upp í fjöllum og allt fullt af hjóla- og mótorhjólafólki. 

Nú er ég á öðrum degi í strengjum eftir hlaupið og þetta hefði alveg getað verið verra. Og ég slapp alveg við meiðsli sem stunduðum hafa komið upp þegar ég hef hlaupið svona hart eftir langa pásu. Það var mikill léttir. Reyndar finn ég stundum aðeins fyrir ökklanum eftir að ég missteig mig en það er held ég ekkert til að hafa áhyggjur af.

Vikan hjá mér hefur verið virkilega annasöm og ég á stanslausum þönum. Þetta hefur orðið til þess að ég hef ekki náð að hjóla neitt af viti fyrir utan samgönguhjólreiðar. Ég náði reyndar að troða inn klukkutíma af endurance í gær. Æfingavikan átti að fylla 5:45 klst en ég er hræddur um að ég muni ekki alveg ná því.

Eftir vinnu í dag er ég að fara með börnin til Reykjavíkur þar sem Brynleifur er að fara að keppa í körfubolta. Það verður hrikalega gaman og mikil tilhlökkun að gista hjá Helgu og Geira. Við komum heim seint á sunnudaginn þannig ég tek með mér hlaupafötin og reyni að koma inn tveimur hlaupum svo ég missi ekki dampinn.

Mataræðið hefur verið þokkalegt þessa vikuna en viktin stendur samt í stað. Ég er alltaf að þusa um þetta en dett alltaf í sama farið. Heilt yfir er ég að næra mig nokkuð vel en ég hef leyft mér of mikið af nammi og bakkelsi. Ef ég sker það niður mun ég sennilega fljótt detta niður í keppnisþyngd án þess að missa power. Þetta er fín lína.

Annars sést á myndinni hérna fyrir ofan þá lifir maður ennþá á ferðinni til Tenerife. Ég er enn að grauta í myndum og spá í þetta allt saman. En það er langt í næstu ferð (þó maður sé að strax farinn að plana hana) og nú er aðal tilhlökkunin að komast út að hjóla með liðinu hérna fyrir norðan. Upp á félagsskapinn er ég að spá í að æfa með HFA í sumar þó það passi kannski ekki alveg við mín æfingaplön. Það eru þá 2 æfingar í viku og svo er samhjól á sunnudögum.


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap