Bic Mac

Medium Bic Mac meal.

Ég vaknaði klukkan 05:20 og tók rúmlega klukkutíma VO2 max æfingu. Ég brenndi 601 kaloríu. Bic Mac máltíð er 1080 kaloríur. Klukkan 16:30 fór ég svo og lyfti í klukkutíma og gæti hafa brennt 200 í viðbót. Afhverju er ég að tala um þetta? Ég veit það ekki?

Annars fórum við Harpa einu sinn i á Mac Donalds á Tenerife og það var geðveikt. Ég fékk mér Bic Mac eins og alltaf, ég get ekki annað. Mörgum finnst þetta algert rusl (sem það er vissulega í einhverjum skilningi), en mér finnst þetta alltaf sjúklega gott. Og ég skammast mín ekkert fyrir það. Kjötið er ómerkilegt en sósan, súru gúrkurnar og brauðið gera þetta guðdómlega djúsi. Frönskurnar á Mac Do eru líka alltaf fínar. Við skoluðum þessu svo niður með sitthvorum Mac Flurry með Oreo og karmellusósu, sennilega 200 cal í viðbót á kjaft. Eins gott að maður var að hreyfa sig. 

Í ferðinni passaði ég mig vel að vera alltaf fullur af orku á hjólinu og svo át ég nánast eins og mér sýndist þess á milli. Ég passaði mig samt alltaf að éta prótein (kjöt, rækjur, egg, túnfisk ofl.) reglulega en nóg át ég af hveiti, sykri og kartöflum. Í morgun viktaði ég mig og var 1 kg léttari en þegar ég lagði upp. Ég er búinn að reyna að halda aðeins í við mig eftir að ég kom heim en brennslan er væntanlega ennþá mjög há.

Ég át þokkalega skynsamlega um helgina en í kvöld vorum við með einhverja lausfrysta kjúklingabita sem eru djúpsteiktir í raspi, IKEA kjötbollur, hrísgrjón og barbeque sósu. Það er náttúrulega ekki mjög gáfulegt en ég nennti ekki út í búð. Á morgun ætla ég að éta salat í hádeginu og eitthvað hollt annað kvöld.

Það var s.s. nóg af æfingum í dag og á morgun á ég erfiða threshold æfingu og svo 2 klukkustunda endurance á miðvikudaginn. Síðan kemur frí á fimmtudag, 2 æfingar á föstudag (lyftingar og hjól) og æfingar laugardag og sunnudag. Þetta verða því ca. 13 klukkustundir þessa viku. Eins gott að næra sig skynsamlega.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Góðan daginn öll

Kylfingur spjall

Negri í Þistilfirði