Dagur #65

Gamla hjólið komið á trainer.Stofan er orðin kósý-rými/hjólaskúr/æfingaaðstaða.

Eftir væl og sjálfsvorkun í gær þá endaði dagurinn sæmilega. Eftir vinnu kom ég heim og græjaði gamla hjólið mitt á trainerinn. Veðrið var viðbjóður og ég nennti ómögulega að eiga eftir að þrífa hjólið þegar ég kæmi heim. Ég tók því rúmlega klukkutíma rólega endurance æfingu í blíðunni í stofunni og það gekk bara fínt. 

Eftir það kíkti ég til Hörpu og við fengum okkur að borða og slökuðum svo á í sófanum og gláptum á einhverja froðu-þætti í Sjónvarpi Símans sem voru ágætir til þess að gleyma sér. Ég var ekki alveg jafn eirðarlaus og ég hef verið og leið ágætlega í eigin skinni.

Núna er ég nýkominn heim úr vinnu og ætla að henda mér í eina stutta en snarpa VO2 max æfingu hérna í stofunni, fara í bað og svo ætla ég að taka mig til fyrir suðurferðina. 

Við leggjum af stað klukkan 08:00 í fyrramálið. Fyrsta stopp: Þingvellir, þar sem við ætlum að hjóla í klukkutíma. Þaðan brunum við í bæinn og förum aðeins í búðir og finnum okkur eitthvað gott að borða. Harpa keppir svo á laugardaginn og ég verð á svæðinu að hvetja hana og aðstoða alla HFA liða ef með þarf. Stefnan var svo að hjóla í Reykjavík á sunnudaginn en það spáir mígandi rigningu þannig við endurskoðum það kannski.

Það hefur því miður orðið afturkippur varðandi batann á öxlinni. Ég er búinn að vera með smá verki í gær og í dag og ég átta mig ekki á því hvort þetta séu bólgur í kringum brotið eða hvort þetta komi frá sjálfu brotinu. Ég finn ekkert fyrir þessu þegar ég hjóla og er eiginlega verstur þegar ég sit við skrifborðið. Ég vona innilega að ég fái sæmilega skoðun eftir helgi en ef Ómar bæklunarlæknir mælir ekki með að ég keppi, þá að sjálfsögðu mun ég hlusta á það.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap