Dagur #38 🇸🇪🐗
Á leið á villisvínaveiðar. |
Á þeim árum, eða öllu heldur áratugum (já ég er að verða gamall), sem ég hef veitt í Svíþjóð, þá hef ég aldrei fengið almennilegt færi á villisvíni. Ég hef skotið rádýr, héra, gæs og dúfur. Villisvín og elgur hafa alltaf verið á listanum en þar sem ég er farinn að veiða svo lítið átti ég ekki endilega von á því að það myndi rætast. Allavega ekki í bráð.
En í gærkvöldi skelltum við feðgar okkur í skóginn og settumst í turn. Við vorum mættir um kl. 22:15 og það var mikið líf í skóginum. Fyrst fengum við greifingja inn og svo kom duvhjort (veit ekki hvað það heitir á íslensku). Klukkan 01:30 kviknuðu svo ljósin yfir fóðurmataranum og stóð þá ekki þar stór og pattarlegur villigöltur. Hann fékk í sig eina 308W og steinlá á staðnum.
Gölturinn þegar verið var að sækja hann. |
Við tókum innan úr honum á staðnum en höfðum svo ekki burði til að drösla honum út úr skóginum. Við hefðum kannski reynt það ef ég hefði haft báðar hendur en það er nú bara eins og það er. Eftir að hafa velt innan úr honum ógeðinu og sett öll rauðu líffærin í poka (það þarf að senda sýni vegna triciniu) þá keyrðum við heim og vorum að sofna milli klukkan fjögur og hálffimm. Ég vissi svo ekki hvaðan á mig stóð veðrið þegar pabbi sparkaði í mig klukkan 7 og sagði mér að við myndum fá hjálp við að drösla þessu út úr skóginum.
Við keyrðum svo heimtil Niclaus veiðifélaga pabba og þaðan til að pikka upp einn sem heitir Kurt og er að veiða með þeim. Það var létt verk að draga dýrið út 4 og henda því upp í þar til gerða körfu sem fest er á kúluna á bílnum. Úr skóginum var svo blessað dýrið keyrt í sláturhús og það verða gerðar pylsur úr öllu draslinu.
Gölturinn tilbúinn í transport. |
Þetta var ótrúlega óvæntur og skemmtilegur vinkill á þetta sumarfrí, enda ár og dagur síðan við feðgar höfum verið saman í skóginum að veiða. Skógarskytterí með riffli er sú veiði sem kveikir mest í mér af öllu. Ég er í siðferðilegri klípu varðandi gæsaveiði en hugsa að ég hætti þessu seint.
Annars fór ég út að hlaupa í gær á luna-sandölunum. Hljóp 3,6 km og var farinn að fá smá verk í kálfann. Er aðeins stirður í dag en ekkert til að grenja út af. Ætla að skella mér 4-6 km á morgun.
Ummæli