Hjólaferð og tiltekt

 Vaknaði klukkan 05:00 í morgun til að fara á klósettið. Fannst aðeins of snemmt að rífa mig á fætur og rotaðist í 5 tíma í viðbót. Það var gott. Lá í rúminu til rúmlega tólf, skrifaði langan tölvupóst, drakk kaffi og skoðaði fréttir. Eftir það fór ég að laga til og gera æfingar en var alltaf alveg á nippinu með að fara bara út að hjóla. Þegar ég var búinn að taka til og þrífa skrapp ég í búðina og þá fattaði ég að það var eiginlega of kalt til að fara langan túr á götuhjólinu. 

Þess í stað pakkaði ég sunddóti í hjólatöskuna og ákvað að fara lengri leiðina í sund. Hjólaði út í Kjarnaskóg, framhjá flugvellinum, í gegnum bæinn og upp Oddeyragötuna. Bærinn var frekar tómlegur og lítið af fólki að viðra sig. Þegar ég var kominn upp í sundlaug fattaði ég að ég var ekki með hjólalásinn. Maður skilur ekki besta vin sinn eftir óbundinn gettóinu, þannig að ég hjólaði bara heim og lagðist í bað.

Nú bíða gæsaborgarar eftir að komast á grillið og ég ætla að sulta rauðlauk. Síðan tekur maður fréttir, drekkur kaffi og málar eina mynd. Á morgun þarf ég að þrífa klósettið og ofninn og mála meira. Ætla svo að sjóða slátur annað kvöld. Er að reyna að éta úr kistunni til að sporðna við matarsóun og spara peninga. Veit ekki með frekari hjólreiðar um helgina. Ætla bara að láta líkamann ráða því.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap