Saltfiskurinn að byrja


Irja hans Þórðar

Árið hefur byrjað býsna vel enda ekki annað að gera en að slaka á og undirbúa sig andlega fyrir komandi viku. Í morgun vaknaði ég reyndar ekki fyrr en klukkan 12 og var ekkert sérstaklega sáttur með það. En eftir að hafa farið út á Gásir með Þórði að viðra Irju, þrífa íbúðina og versla er ég bara góður.

Það fyrsta sem ég gerði þegar ég vaknaði í morgun var að stíga á viktina og tékka hvernig ég hefði komið út úr jólaátinu. Ég starði á töluna í smástund og á endanum þurfti ég að beygja mig niður, því ég hélt ég væri að sjá einhverja vitleysu. 67,1 kg. Ég er búinn að léttast um jólin! Þetta er eiginlega komið á það stig að ég sé farinn að spá í hvort ég sé orðinn eitthvað lasinn? Mér líður allavega vel. Kannski er ég bara dottinn inn í einhvern lífsstíl sem passar mér fínt.

Annars er maður búinn að vera að hræra aðeins í Tinder upp á síðkastið. Mig minnir að það hafi verið í vor sem ég skráði mig fyrst þarna,  en svo tók ég mér pásu í ca. 3 mánuðir þar sem ég var í stafrænu sambandi við konu sem býr Lengstíburtistan. Fólk heldur kannski að það sé ekki hægt að verða ástfangin svona stafrænt, en það er hægt. Við áttum eldheitt og innilegt samband en því miður gekk þetta ekki upp af ýmsum ástæðum. 

Ef frá er talið þetta "virtual relationship", þá hef ég farið á nokkur stefnumót þar fyrir utan sem hafa ekki farið neitt lengra. En ég ætla ekki að þusa meira um Tinder í bili. En ég er að spá í hvort ég skrifi ekki fljótlega smá pistil um upplifun mína af Tinder og hvað þetta hefur kennt mér.


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap