Brynleifssögur

 Stundum skrifa ég eitthvað sniðugt sem börnin hafa sagt inn á FB. Stundum nenni ég því ekki en það er samt skemmtilegt því maður fær alltaf minninguna upp og þetta rifjast upp fyrir manni. Í kvöld nennti ég ekki að skrifa þetta inn á FB og set þetta bara hér:

Ég var eitthvað að ræða draumastörf við börnin við matarborðið. Brynleifur vill verða fótboltamaður og Dagbjört ætlar að vinna á leikskóla og vera lögga (gott combo). Út frá þessu datt Brynleifi í hug að ég gæti skipt um starfsvettvang og sagði "Pabbi, þú getur orðið fótboltamaður!". Ég var að fara að reyna útskýra fyrir honum að ég hefði ekki alveg hæfileikana í það þegar hann bætti við "nei... ég var búinn að gleyma því hvað þú ert orðinn rosalega gamall".

Um daginn sagði Brynleifur mér líka að þegar hann yrði stór ætlaði hann, Patti og Árni að búa í húsbíl. Árni ætlar að starfa sem náttúrufræðingur, Patti ætlar að vinna á gröfu en Brynleifur ætlar að vera heimavinnandi og elda fyrir þá matinn. Gott plan!

Kjafturinn á mér er loksins að verða góður. Mikið rosalega get ég glaðst yfir því <3

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap