Haustlegt
Nú fer maður að þurfa að játa sig sigraðan og viðurkenna að haustið er að ganga í garð. Það kólnaði aðeins í dag, búið að vera þungbúið og gróðurinn er farinn að láta örlítið á sjá. En þetta er nú samt allt í góðu ennþá. Ég horfði á spánna áðan og sýnist vikan ekkert líta svo illa út þrátt fyrir fyrri spár. Föstudagurinn gæti meira að segja orðið drullu fínn.
Ég ætla s.s. ekkert að fara að gera upp sumarið hérna í löngu máli en það hefur þrátt fyrir allt verið býsna gott. Hjólaferðin mín var frábær og þó að ég hafi ekki náð að gera allt sem ég ætlaði að gera með krökkunum, þá var mjög gaman hjá okkur. En eins og venjulega þaut sumarið hjá og var búið eiginlega áður en það byrjaði.
Börnin eru komin til mín og lífið er aftur að detta í rútínu. Brynleifur er reyndar ekki byrjaður í skólanum ennþá en ég þarf að vinna á daginn og reyna að hafa ofan af fyrir honum með einhverjum hætti. Hann fer á fótboltaæfingar á morgnana en kemur svo til mín í vinnuna og borðar. Á morgun fer í hann í heimsókn til vinar eftir hádegið og það ætti aðeins að minnka gláp og tölvunotkun.
Ég er eins og venjulega í einhverri togstreitu hérna heima. Finnst eins ég eigi alltaf að vera að gera eitthvað og á erfitt með að slappa af með góðri samvisku. Klukkan er núna orðin hálf tíu og ég rétt að setjast niður eftir langan dag þannig ég ætti nú s.s. ekki að vera á neinum bömmer. Blöndunartækin á vaskanum á baðinu gáfu upp öndina í fyrradag og ég var að skrúfa þau af áðan. Á morgun þarf ég að fara og kaupa ný og setja þau upp.
Ég veit ekki alveg hvað ég geri með börnunum um helgina en er aðeins að skoða það hvort við förum eitthvað í berjamó að safna vistum til vetrarins. Þetta helvítis COVID ástand er heldur ekkert að gera manni auðveldara fyrir. Sundferðir og svoleiðis hlutir eru ekki eins einfaldir og maður á að venjast. Ég var líka aðeins búinn að láta mér detta í hug að kíkja með börnin til Reykjavíkur en ég held hreinlega að ég tími því ekki að svo stöddu.
Í síðustu viku hjólaði ég slatta og er ekki alveg dottinn úr hjólaformi. Hjóla væntanlega ekki mikið þessa vikuna en reyni að fara þeim mun meira í ræktina í staðinn. Tók erfiðar æfingar bæði í gær og í dag en ætla að hvíla á morgun. Reyni svo að komast tvisvar í ræktina í viðbót í vikunni og helst ná einum góðum hjólatúr.
Ég hef verið í ótrúlega góðu jafnvægi í matarmálum og er mjög sáttur með hvernig ég er að gera þetta núna. Ég er ennþá að borða 3 hæfilega stórar máltíðir á dag sem samanstanda af próteini og kolvetnum. Svo nasla ég yfirleitt alltaf eitthvað fyrir æfingar og fæ mér líka eitthvað strax eftir æfingu. Þess utan er ég ekki í neinum vandræðum með að langa í nammi eða óþverra. Ég ét aldrei neitt eftir kvöldmat og langar ekki vitun til þess. Í dag keypti ég mér mysuprótein með BCAA en það hef ég ekki gert í mörg ár. Ástæðan fyrir því er einfaldlega sú að ég er orðinn dauðleiður á að éta egg á morgnana eða eftir æfingar. Ég er pínu spenntur að vita hvort þetta skili einhverjum árangri.
Ég er búinn að vera í viðræðum við Markið í Reykjavík um hvort þeir geti reddað mér Surly Pugsley hjóli fyrir veturinn (eða vorið í síðasta lagi). Þeir eiga mjög erfitt með að svara því og ég er orðinn pínu þreyttur á þessu. Ég er tilbúinn til að leggja inn pöntun og get borgað inn á það ef út í það fer. Vonandi fer það eitthvað að skýrast.
Eftir að hafa legið á netinu í nördakasti að skoða hjól og spá og spökulera í hvað væri rétt hjá mér að gera, þá er ég orðinn sannfærður um að þetta hjól verði ég að eignast. Þá er ég kominn með 2 níðsterk ferðahjól sem nýtast í alla hugsanlega ferðamennsku auk þess sem ég verð vel settur innanbæjar allt árið. Ástæðan fyrir því að ég vil helst fara í Fatbike (t.d. frekar en 29+) er einfaldlega sú að ekkert getur komið í staðinn fyrir þessi hjól í sandi (hálendi Íslands) og snjó (veturinn innanbæjar og jafnvel ferðalög). Þetta hjól væri t.d. frábært í langar ferðir í Evrópu og Suður Ameríku ef maður nennir ekki að vera alltaf á malbiki.
En jæja ætli ég láti þetta ekki gott heita í bili. Settist niður með tölvuna og ætlaði s.s. ekki að skrifa neitt sértstakt en er hér búinn að drulla út úr mér hálfgildings ævisögu. En mér hefur reyndar alltaf fundist ævisögur skemmtilegar.
Góðar stundir,
Bjarni
Ummæli