Æfingar vikunnar
Nú er sunnudagur og ég var að koma úr ræktinni. Þetta var svokölluð tabata æfing. Ég vissi s.s. hvernig æfingar þettu eru en hef aldrei prufað þetta sjálfur. Markmið með þessum æfingum er að auka þol. Þetta voru 5 æfingar; þungar rússneskar ketilbjöllusveflur, assault bike, burpees, magaæfingar og kassaupstig með lóði. Maður tók hverja æfingu 8x og vann í 20 sekúndur á miklu efforti og hvíldi svo í 10 sekúndur. Á undan þessu vorum við búin að taka styrktaræfingar. Ég er gjörsamlega búinn á því.
Ef minnið svíkur mig ekki þá tók ég æfingu á mánudaginn, miðvikudaginn, föstudaginn og svo í dag. S.s. fín vika þrátt fyrir ferð til Reykjavíkur. Og svo er maður búinn að ganga bæinn þveran og endilangan eins og venjulega. Í og úr vinnu, í ræktina, í búðina osfv. Ég ætla heldur ekki að lyfta litlafingri á morgun.
Mataræðið hefur hinsvegar verið frekar frjálslegt og maður er kominn í hálfgerðan jólagír í þeim efnum. En ég reyni þó að muna eftir því að fá allavega eina næringaríka máltíð á dag. Það er aðal málið.
Þar sem börnin koma til mín á morgun ætla ég að nýta daginn í að taka allt í gegn hérna og verlsa helstu nauðsynjar; kaffi, morgunkorn og mjólk. Annars eru engin plön fyrir vikuna. Bara að reyna að gera eitthvað jólalegt og skemmtilegt með gríslingunum.
Kveðja, Bjarni

Ummæli