Dalsgerði selt


Nú lítur endanlega út fyrir að við séum að ná að selja Dalsgerðið. Fassteignasalinn sendi tölvupóst í gær og sagði að greiðslumat væri komið í gegn hjá krökkunum sem ætla að kaupa og nú þyrftum við bara að finna tíma til að skrifa undir þetta allt saman.

Þó það fylgi þessu mjög erfiðar tilfinningar veit maður að það er gott að loka þessum kafla. Vonandi á maður eftir að líta þær minnigar sem maður á frá þessum stað sem góðar minningar. Í dag eru þær mjög sætsúrar.

Ég er búinn að hringja út af einni íbúð sem ég bauð í á sínum tíma og hún er ennþá óseld. Ég ætla að reyna að skoða hana aftur á mánudaginn. Hún er í blokk, með 3 svefnherbergjum og stutt frá skólanum og leikskólanum. Hún er í ágætu standi þó allar innréttingar séu upprunalegar. Það verður s.s. 70s þema hjá mér ef ég kaupi hana.

Annars er maður bara í góðum gír. Ekkert jólastress hér á bæ. Reyndar er jólastress eitthvað sem hefur aldrei hrjáð mig neitt. En þar sem við verðum hjá Guðrúnu á aðfangadag og þar sem ég fer svo til mömmu á jóladag, þá þarf ég ekki að kaupa mikið af mat eða hugsa fyrir heilum máltíðum. Eins verður lítið um konfekt- og jólaölskaup. Eiginlega það eina sem er eftir eru nokkrir litlir pakkar. Ég ætla með börnin í bæinn á morgun og reyna að ganga frá þessu.

Gleðileg Jól

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap