Post title
Það er ekki nokkur hemja hvað ég er lélegur að skrifa hér inn. Stundum sleppi ég því bara þar sem mér finnst ég ekkert hafa að segja. Nenni ekki að ryðja úr mér einhverju hversdagslegu bulli um allt og ekkert. En til lengri tíma litið held ég að það sé ekki svo vitlaust að gera það. Halda einskonar dagbók. Gera þetta bara fyrir sjálfan sig.
Lífið gengur annars bara sinn vanagang. Hægðartregða á húsnæðismarkaði, börnin frísk og yndisleg, ég í óvenju lítilli tilvistarkreppu og restin snýst bara um mat og ræktina. Það er þá ekki alvarlegt á meðan.
Í síðustu viku fór ég að leggja drög að því að hóa saman fólki hér í bænum sem hefur áhuga á bíllausum lífsstíl. Fékk nokkuð góð viðbrögð en á eftir að finna heppilega tímasetningu. Þessi lífsstíll verður hálfgert áhugamál hjá manni og það verður gaman að taka þátt í baráttunni við að gera bæinn samgönguvænni fyrir fólk af okkar sauðahúsi.
Er að fara með Brynleifi á fótboltamót á laugardaginn og ætla að senda Dagbjörtu í sveitina til ömmu á meðan. Það verður næs að fá smá strákastund. Flýg svo suður á sunnudaginn og verð þar alla næstu viku.

Ummæli