Málerí
Fann þessa gömlu mislukkuðu mynd sem var hugsuð fyrir vin. Hún er risastór en ég hugsa að ég hafi að endingu málað aftan á hana og notað hana í skissupappír |
Ég er búinn að gera 3 tilraunir til að blogga í vikunni sem er að líða. Það hefur eitthvað vafist fyrir mér og ég hef alltaf að endingu strokað út það sem ég hef skrifað. Það hefur ekki alveg legið nógu vel á mér og ég hef verið gjörsamlega tómur og mjög áhugalaus um flest allt. Mér hefur ekki liðið vel og vantað einhvern til að tala við. Ég hringdi loks í Þolla í morgun og hann er alltaf tilbúinn til að hlusta á þusið í manni. Mér leið betur eftir það.
Nú þarf ég markvisst að fara að vinna í því að koma af stað einhverjum skapandi verkefnum. Sama hvort það sé að mála, skrifa eða bara eitthvað annað. Upp á síðkastið hef ég eitt öllum kvöldum í að horfa á þætti á Netflix eða lesa bækur. Það er auðvitað allt í lagi að gera það inn á milli, en ekki kvöld eftir kvöld. Mér líður alltaf best þegar ég hef eitthvað fyrir stafni, sama hvort það er að skipuleggja hjólreiðaferð og blogga um það, eða bara að mála myndir.
Eitt sem mér hefur dottið í hug að gera er að verða mér úti um stórt borð til að setja í borðstofukrókinn fyrir listadótið mitt. Mig langar að skipta því í tvennt og hafa föndurdót, skæri, lím og málningu fyrir börnin á helmingnum af borðinu. Skapa þeim aðstæður þar sem þau geta alltaf gripið í skapandi verkefni án þess að þurfa að hafa áhyggjur af því að skíta allt út eða að ganga frá eftir sig.
Þetta er gott plan. Svei mér þá ef þetta kveikir ekki bara í manni smá neista!
Ummæli