Dagbókarbrot
25.09.2019
Geggjað veður í dag, enn einn daginn. Hlýtt, logn en skýjað. Í gær var 19°C þegar ég sótti börnin og við skelltum okkur í sund. Vorum í útiklefa og það var hálf undarlegt að standa þarna nakinn undir berum himni og vera ekkert kalt. Og það þegar er að verða kominn október.
Eftir sundkið hjóluðum við heim, sem tók smá stund þar sem DLB hefur aldrei hjólað upp svona miklar brekkur. Síðan lærði ég lengi með BRB og gaf þeim snarl. Mamma, Halldóra og Bjarni kíktu svo við hjá okkur. Fullorðna fólkið át salat úr Salatsjopunni.
Halldóra ætlar að sækja fyrir mig börnin í dag og ég ætla í ræktina. Síðan borðum við saman. Át hrikalega mikið af kótilettum í hádeginu og er búinn að vera frekar mikið í sukkinu þessa viku, þvert á fyrri yfirlýsingar. Svo er fimmtudagskaffi á morgun og vinnu- og gæsaferð í næstu viku. Á svona stundum er auðvelt að sleppa bara alveg fram af sér beislinu en ég ætla nú samt að reyna að fara ekki alveg í ruglið.

Ummæli