Jebb
Út um gluggann á Hobby-do. |
Síðan ætlaði ég að reyna að fara í gegnum einhverja kassa af skissum og málverkum og grisja úr versta ruslið svo ég þurfi ekki að flytja þetta allt milli staða. Ég hafði séð fyrir mér að þetta væri 80% eitthvað sem mætti missa sín en ég gafst fljótega upp og henti engu. Kannski var þetta ekki eins slæmt og mig minnti. Þyrfti eiginlega að fá Þórunni frænku til að fara í gegnum þetta með mér.
Skissan sem fylgir póstinum er gerð í Birkihrauninu 2014 eða 2015 sennilega. Bústaðurinn hans Steinda, höllin hans Óla Þrastar og bústaðurinn hans Saka. Múlavegur, gjarnan nefndur Piparsveinastræti, en nú er Óli genginn út guð sé lof. Já og nú er búið að setja 2 nýjar götur þarna á milli húsanna og útsýnið heldur betur breyst. Mér finnst alltaf vænt um þessa skissu þrátt fyrir að ég hafi brotið allar reglur og sett blessað tréið fyrir miðja mynd.
Ummæli