Húsnæðismál í bið

Nú er kauptilboð mitt í blokkaríbúðina í Tjarnarlundi endanlega runnið út og hún komin aftur á sölu. Konan sem er að selja hana gat ekki beðið lengur með svör og það er ekkert að frétta af sölumálum á okkar eign. Engin sem grennslast fyrir, enginn skoðar og þar af leiðandi berast engin tilboð. En þetta er viss léttir því mér fannst óþægilegt að vera að halda einhverri íbúð, jafnvel þegar útlit er fyrir að við fáum eitthvað minna fyrir Dalsgerðið en við reiknuðum með.

Mér finnst ákveðinn kreppufílingur í loftinu. Þetta verður kannski ekki jafn stórt og síðasta kreppa en ég er nokkuð viss um að það er að koma hressileg dýfa. Ég byggi þetta bara á tilfinningu. Það gerði ég líka árið 2008 en hafði rétt fyrir mér. Maður þarf ekki að leggjast yfir verga landsframleiðslu og vaxtabótavísitölu bla bla. Þetta er bara í loftinu.

Annars allt svipað. Guðrún er byrjuð að pakka og nær vonandi að flytja út um helgina eða í næstu viku. Það þýðir reyndar að ég þarf að fara út í einhver fjárútlát. Næst á dagskrá er sennilega að kaupa þvottavél og síðan vantar mig góðan pott til að sjóða í matvæli. Lengra ná áhyggjur mínar ekki, ef áhyggjur skyldi kalla.

Ég fór suður til Reykjavíkur í gær í vinnuferð. Það heldur í manni lífinu að komast í svona ferðir. Ég hef gaman af að vera á svona þvælingi, fara út að borða og hitta nýtt fólk. Þetta brýtur upp hversdaginn. Í hádeginu átum við á Bombay Bazaar í Ármúla sem er að verða fastur punktur þegar við landsbyggðarpakkið erum í borginni, enda bara næsta hús við Suðurlandsbraut 24. Mæli eindregið með þessum stað. Frábær matur

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap