Draumur
Mig dreymdi í fyrrinótt að ég var að hjóla á nýja hjólinu mínu. Ég var á nokkuð mikilli ferð á kindastígum og hrauni. Framunda voru þrengingar og grjót. Ég var viss um að detta en í stað þess að hægja á mér jók ég bara ferðina. Það kom mér svo í opna skjöldu að ég rann auðveldlega yfir allar hindranirnar og hélt för minni áfram. Það var einhver rosaleg mýkt og dempun í hjólinu. Ég sveif áfram á fullri ferð inn í óvissuna. It´s a sign.
Prufaði aðra tilraun á nýja verkefnið mitt í gærkvöldi. Sem fyrr á ódýran þunnan skissupappír. Nú teiknaði ég ekki neitt eiginlega áður en ég byrjaði. Þannig fær maður aðeins mýkri útkomu. Ég er engu nær
Ummæli