Syttist í sýningu


Krotaði í vinnunni. Frá garði vinar í CF - USA

Nú styttist í að ég fari að ég reyni að hrúga saman verkum í eina sýningu. Hef verið að ramma inn mynd og mynd. Á eftir að velja 3-4 í viðbót og senda í innrömmun. Ég er pínu feiminn við þetta. Þetta er eitthvað svo persónulegt og innst inni blundar sú tilfinning að þetta sé ekki allt sýningarhæft. Ég hef aldrei fundið neinn sem er tilbúinn að segja við mig "Nei heyrðu, þetta eru bara frekar ljótar myndir hjá þér!". Það er grunsamlegt.

Samt finnst mér að ég verði að klára þetta af. Þá er einum kafla lokið, barnskónum slitið. Maður heldur svo áfram. Vonandi að mála.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap