1862 Nordic Bistro
Þar sem ég er svo svangur núna langar mig að minnast aðeins á 1862 Nordic Bistro sem er í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Át þarna tvisvar í hádeginu um daginn og kunni vel að meta. Hádegistilboð á 1790 kr., vel útilátið með góðri þjónustu.
Lambalæri Bernaise í fyrra skiptið og steikt rauðspretta á rúgbrauði seinni daginn. Ég kunni kannski ekki alveg nægilega vel að meta rauðsprettu-kombóið, hið rammdanska smurbrauðs Himmelbjerg. Hefði frekar kosið að hafa þetta í sitthvoru lagi, en það er víst eitthvað smurbrauðsfettis í gangi þarna. Lambið var brútalt, steikt að hættii AGS og rann niður eins majones. Snilld. Held það sé erfitt að finna betra tilboð á Akureyri og vonandi er þetta komið til að vera.
Drullaðist til að greiða veiðikortið í dag og ætla að skreppa til rjúpna í fyrramálið. Það kemur þá í staðinn fyrir laugardagshlaupið. Verst að maður hefur heyrt að lítið sé af rjúpu, kemur allt í ljós. Pizza í kvöld. Allt í góðu. Lífið er dásamlegt.
Góða helgi, Bjarni
Ummæli