Maraþonkræklingur
Jæja þá er fyrsta keppnishlaupinu lokið og gekk það ágætlega. Fór 10 km í Mývatnsmaraþoni í frekar afleitu hlaupaveðri. Setti bara undir mig hausinn og móaðist á móti vindinum. Háði harða baráttu við Hinrik sem hafði sig framúr á lokametrunum. Náði ekki markmiði mínu tímalega séð en er að spá í að reyna við það í Heilsuhlaupi Krabbameinsfélagsins sem er þann 8. júní í Reykjvaík.
Annars var ég að koma úr alveg ægilegri vinnuferð. Keyrði á miðvikudaginn frá Skagaströnd til Ísafjarðar með smá stoppi á Hólmavík. Fór svo til Bolungarvíkur í gær (fimmtudag) og var á sjónum allan daginn að merkja grásleppur og skötusel. Keyrði síðan í einum rikk án þess að stíga út úr bílnum í Stykkishólm og át þar krækling og tók með mér 30 kg. af kræklnig á Skagaströnd. Var kominn heim milli 2 og 3 í nótt og svaf alveg til 8 í morgun. Blessuð ellin að gera vart við sig.
Kveðja, Bjarni
Ummæli