Ferðasaga IV
Komið að því að leggja í á ráðstefnu á Prince Edward Island (PEI) í Kanada. Ráðstefnan ber yfirskriftina: International Conference on Molluscan Shellfish Safety 2011. Ég skil ekki hvað það þýðir og er mjög spenntur að sjá um hvað ráðstefnan er.
Hafði eitthvað lítið fyrir stafni og ákvað að mæta 3 tímum fyrr út á Keflavík, sem var mátulegt þar sem var bara 2 tíma seinkun á flugi. Lenti svo í Toronta eftir 5 tíma flug og þurfti að bíða lengi eftir töskunum mínum. Hljóp svo eins og sveittur grís út um allan völl til að reyna að ná tengifluginu mínu til PEI. Missti af fluginu en fékk flug til Halifax í staðinn og fyrir hálfgerða tilviljun voru Jens og Halldóra frænka stödd þar. Kom eftir 18 tíma ferðalag og skreið inn á herbergi hjá þeim og lagði mig.
Ummæli