Innlit útlit
Jæja ég ákvað að taka áhættuna og breyta lúkkinu á síðunni hjá mér. Ég er nú ekki alveg að kaupa þetta en ætla að láta þetta helvíti damla eitthvað áfram. Þetta er eitthvað svo kjúttí og sumarlegt, eins og myndin af mér og Guðrúnu. Gvööööð algerar dúllur ó mæ god.
Annars er lítið að frétta. Bara ekki rassgat. Nema kannski þessi skötuselur sem ég held á á myndinni, stærðarinnar fituhlunkur sem hefði verið gaman að grilla. Veiddist á Ísafjarðadjúpi, vóg 18,6 kg og var 110 cm að lengd. Þetta undirstrikar kannski hvað ég er hávaxinn. Annars tengist þessi fiskur mínu lífi þannig að ég er að vinna að rannsóknum á skötusel þessa dagana og finnst það ekki verra en hvað annað.
Góða helgi, Bjarni
Ummæli
Kveðja, Bjarni