Með hár á eyranu
Ég er í sjokki. Fór á klósettið nú í hádeginu og sá þá hár sem ég áleit í fyrstu að væri af Guðrúnu og lægi laust á eyranu á mér. Ég reyndi að taka það af en viti menn, það var rótfast. Hárið er að ég held ca. 1,4 cm á lengd en ég hef ekki nægilega góða myndavél til að taka mynd af því og sýna ykkur. Það eina jákvæða við þetta er að það er mjög ljóst og frekar fíngert. Þetta er búið spil, ellin er að hellast yfir mig. Ég skil ekkert í konunni að hafa ekki tekið eftir þessu.
Einnig gengur orðið hægar að skafa af sér belginn eftir jólaátið og ég fer sífellt fyrr að sofa. Jæja ég verða að fara að vinna.
Kveðja, Bjarni
Einnig gengur orðið hægar að skafa af sér belginn eftir jólaátið og ég fer sífellt fyrr að sofa. Jæja ég verða að fara að vinna.
Kveðja, Bjarni
Ummæli