Matur

Ég sit veikur heima í dag. Var orðinn eitthvað slappur í gær og ákvað að halda mig til hlés í dag og vita hvort ég næ ekki að hrista þetta úr mér á mettíma. Hafði mig fram úr rúminu áðan og ákvað að fá mér eitthvað kjarnfóður. Þar sem mataræðið hjá mér hefur ekki verið upp á marga fiska síðustu daga (vikur) langaði mig í eitthvað hollt en fyrst og fremst eitthvað létt og einfalt, enda ekki í stuði fyrir eldamennsku. Lendingin varð súpa, Maggi Sping Season. Ég vissi svo sem að þessi matur er ekkert sérstaklega hollur en mig hafði kannski ekki alveg grunað að ég væri að fara að hella ofaní mig slurk af eitri.

Nú ætla ég að telja aðeins upp hvað er í svona súpum og það sem er verra, ég hef grun um að bollasúpur séu ennþá verri.
Fyrir utan þetta hefðbundna þurrkaða pasta og grænmeti (laukur, hvítlaukur, tómatar, sveppir, blómkál og baunir) var þar að finna:

Maltodextrin: Sætuefni, það er reyndar af náttúrulegum uppruna en mig langaði ekkert í það.

Monosodium glutamate: Kveikir einhver á perunni? Þetta er fræðilega heitið á MSG og það væri allt of langt að telja upp hverslags skítur þetta er. Bendi samt á skemmtilegt myndband á youtube (http://www.youtube.com/watch?v=g-pnzj0c06Q )

Disodium inosinate: Efnaformúla C10H11N2Na2O8P og finnst gjarnan í núðlum, súpum og snakki. Þetta er salt af inosinic sýru og trikkið er að spila á bragðlaukana. Bragðið sem þetta myndar með MSG kalla japanir umami. Ef MSG er ekki í vörunni er líklegt að amínósýrunni glútamíni sé bætt í vöruna með öðrum hætti til að fá rétt bragð (MSG er nefnilega salt af glutamínsýru).

Disodium guanylate: Líka gjarnan notað með MSG til að fá ennþá meiri fyllingu og bragð. Unnið úr enhancer guanosine monophosphat, öðru nafni GMP. Þetta er sennilega voðalega fínt stuff en það er samt ekki mælst til að börn undir 12 vikna aldri borði það eða fólk með asma eða þvagsýrugigt.

Hydrogenated palm fat: Það sem þetta þýðir á mannamáli er transfita, lítur bara betur út á pappír. Þegar búið er að blása vetni í gegnum fitu riðlar það tvítengjum á fitusýrunum, gefur fitunni betri endingu (varnar oxun tvítengja á kolefniskeðju), aukna hörku og svaðalega óhollustu.

Gerþykkni: Þessu er bætt í mat í með fyrrnefndu disodium inosinate til að bragðbæta.

Annað sem er í þessari súpu tekur svo sem ekki að nefna enda hefur það ekkert næringargildi né heldur er það bráðdrepandi. Þetta var ábyggilega það sem ég þurfti til að ná heilsu á ný, á mettíma. Þegar maður fer aðeins að velta fyrir sér hverju er blandað í matinn sem við étum, einkum pakkamat og skyndibita, þá sér maður hvað er hægt að spila endalaust með bragðlaukana bara með því að vera klár í efnafræði. Eins og segir í þessu myndbandi sem ég benti á: "Það er hægt að láta drullu bragðast vel með MSG". Þessi blessaða súpa sem ég var að éta lætur síðasta sunnudagsmorgunmat hjá mér líta út sem Magga Scheving í duftformi. Þá át ég amerískar pönnukökur með beikoni, sírópi, bræddu súkkulaði, krækiberjahlaupi og þeyttum rjóma sem innihélt niðursoðin jarðarber og súkkulaðirúsínur. Ég vil taka það fram að ég er ekki að grínast og ég mæli ekki með þessari samsetningu.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Á ég að trúa að svona óþverri sé til í búrskápnum þínum...???
Kv. Sigríður Júlía Brynleifsdóttir
Bjarni sagði…
Já og það var meira að segja ekki systur þinni að kenna;) Ég verð að fara að endurskipuleggja matarkaupin hérna.
Nafnlaus sagði…
Hún Sigga veit nú að ég borða BARA hollan mat, engan óþverra;0)
Knúsíknús

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap