Mótmæli

Boðuð mótmæli ungmenna um heim allan 15. mars næstkomandi.

Það merkilegasta sem er að gerast í heimsmálunum er án efa mótmæli ungmenna vegna skeytingaleysis stjórnvalda í baráttunni gegn loftslagsmálum. Það virðist ekki vera nein alvara að gera neitt af viti. Hetjan sem hratt þessu af stað er Greta Thunberg, 16 ára aktivisti, sem hefur lýst því þannig að ungmennin séu að berjast fyrir framtíð sinni, það sé engin hjálp í því að þurfa að berjast gegn fullorðna fólkinu líka. Svo er bara vonandi að þetta skili einhverju. Ég hef trú á þessari kynslóð og held að hún sé ekki alveg jafn forpokuð og þröngsýn og búðingarnir sem nú stjórna.

Nú er vika síðan ég fékk eitthvað helvítis kvef og ég er ekki búinn að ná mér ennþá. Þetta er svona dæmigert leiðindajukk, ég er ekki nógu slappur til að geta sagst vera veikur með góðri samvisku, en heldur ekki nógu hress til að fúnkera fullkomlega. Ofan á þetta hefur svo bæst að maginn á mér er búinn að vera á hvolfi. En það er ekkert við þessu að gera nema bara bíða rólegur.

Brooks Cambium C17
Ég hef dansað á línunni í ketó-inu síðustu daga og sennilega stundum farið yfir kolvetnakvóta dagsins. Það hafa komið tímabil núna þar sem mér líður eins og líkaminn sé hreinlega að kalla eftir einhverjum kolvetnum. Sennilega gerist það bara þegar ég hef farið yfir strikið. En ég er stundum að verða svolítið þreyttur á þessu og hlakka til þegar mars verður búinn.

Ég hringdi í Örninn í vikunni og fékk staðfest að hjólið kemur 20. mars. Það er seinna en ég bjóst við en ég er s.s. ekkert að stressa mig. Í tilefni af því missti ég mig aðeins og pantaði mér nýjan hnakk, afturljós og pedala frá Þýskalandi. Örninn var ekki búinn að svara fyrirspurnunum mínum og ég gafst upp á þeim. Ég verð að viðurkenna að hnakkinn keypti ég aðalega út af útlitinu, en hann á að vera alveg geggjað góður samt. Þetta er Cambium C17 frá Brooks England. Guðrún gaf mér líka burðartöskur frá Brooks til að nota innanbæjar í afmælisgjöf. Ég verð eins og lítill krakki þegar ég fer að raða þessu öllu saman.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap