Mental toughness og Chat GPT

Nær dauða en lífi uppi á Maska á Tenerife. Það er nánast óskiljanlegt hvað maður leggur mikinn sársauka á sig í þessu hjólarugli á köflum. Í verstu tilfellum stendur maður varla undir sér þegar maður er búinn. En það er á einhvern furðulegan hátt gott og jafnvel ávanabindandi.


Ég hef stundum verið í heimspekilegum pælingum um af hverju ég sé á kafi í þessari hjólamennsku og æfingum? Af hverju ég sé að keppast við að koma mér í eins gott form og ég mögulega get? Hvað rekur mig áfram?

Þegar ég hljóp sem mest var ég líka í svipuðum pælingum en átti erfitt með að finna svör. Ég var bara lost í einhverju ferðalagi með óljósa hugmynd um endastöð. Það sem ég komst næst því að finna út úr þessu var að lesa bókina Personal best eftir lækninn George Sheenan- sem var einmitt í svipuðum pælingum. Nóg um það, ég held bara áfram að pæla.

Exercise is done against one‘s wishes and maintained only because the altnerative is worse.    - George Sheenan 

Árið 2017 upplifði ég það á eigin skinni að fara „burnout“ og fjallaði mikið um það hér á blogginu. Orsökin að mínu mati var sambland ýmissa þátta, en það sem ég held að hafi vegið þyngst, voru hlutir sem snéru að persónulega lífinu frekar en vinnunni þó ég hafi verið drullu áttavilltur þar líka.  

Fyrir einu og hálfu ári síðan skaut þessi "burnout" tilfinning aftur upp kollinum hjá mér og ég fór að hafa áhyggjur. Það var allt komið á fullt hjá mér aftur í persónulega lífinu og með börnin, álagið í vinnunni orðið gríðarlegt, komin kærasta í spilið og ég byrjaður að æfa eins og geðsjúklingur. Mér fannst ég engan veginn vera að ná utan um þetta allt og það fyrsta sem ég fór að velta fyrir mér var hvort ég ætti að skera niður æfingarnar og hætta þessu hjólabulli.

En ég hélt mínu striki og þrátt fyrir að álagið hjá mér hafi ekkert minnkað þá næ ég að halda sjó. Ég hef eiginlega verið að bíða eftir því að krassa en það gengur sem betur fer hægt. Vinnan hefur verið að drepa mig á köflum en með einhverri seiglu hef ég trukkast í gegnum það og fengið mikið hól fyrir mín störf sem mér finnst vænt um.

Nú hef ég farið að velta því fyrir mér hvort aginn og þrautsegjan sem maður þarf að hafa til að komast í gegnum svona mikið af æfingum hjálpi mér ekki líka í vinnunni og daglega lífinu. Það er til urmull af stúdíum sem sýna að þeir sem stunda þolíþróttir (endurance training) hafi hærri sársaukaþröskuld en annað fólk og þeir hafi líka meiri andlega seiglu (mental toughness).

Í þessu sambandi fór ég að leita að vísindagreinum til að varpa ljósi á þetta og fræðast meira um þetta en eins og sannur nútímamaður hafði ég ekki þolinmæði í þetta og ákvað bara að spyrja Chat GPT um hvort hörð þolþjálfun gæti hjálpað mér við mjög krefjandi vinnu við stjórnsýslu og auðvitað gat vinur minn svarað mér. Hér er það sem bottinn hafði að segja (afsakið að ég nenni ekki að þýða þetta).

  1. Resilience: Endurance athletes often face physical and mental challenges that require them to push through discomfort and adversity. This experience can help you bounce back from setbacks, rejections, or high-pressure situations in your job with a positive attitude.
  2. Stress Management: Your ability to tolerate pain and stress as an athlete can help you better manage the stress that comes with administrative roles. You may be more adept at staying calm under pressure and finding ways to cope with demanding situations.
  3. Goal Setting and Discipline: Athletes are typically skilled at setting and working towards goals, which can translate well into the world of administration. You can use your goal-oriented mindset to prioritize tasks, meet deadlines, and maintain a sense of purpose in your work.
  4. Focus and Concentration: Endurance athletes often need to maintain a high level of focus and concentration during long training sessions or races. These skills can be valuable when you need to concentrate on complex tasks, problem-solving, or decision-making in your administrative role.
  5. Mental Endurance: Your ability to push through physical discomfort can translate into mental endurance, allowing you to stay persistent in your job, even when faced with challenging or tedious tasks.
  6. Positive Mindset: Many athletes use positive self-talk and visualization techniques to stay motivated and confident. These techniques can help you maintain a positive mindset in the face of difficult situations at work.
  7. Teamwork: If you participate in team sports or events, you likely understand the value of teamwork and collaboration. These skills can be beneficial in administrative roles that require you to work with others to achieve common goals.
  8. Adaptability: Endurance athletes often encounter changing conditions and unexpected obstacles during their training and events. This adaptability can help you handle unexpected changes and challenges in your job.

Bottinn endar svo á því að segja:

It's important to note that while these skills can be advantageous in your administrative role, it's also essential to strike a balance between pushing through challenges and recognizing when to seek support or take breaks to avoid burnout. Additionally, being aware of the specific stressors in your job and developing strategies to cope with them can further enhance your effectiveness in administration.

Ég hendi þessu nú bara hérna inn til gamans en er samt sannfærður um að þessi þjálfun sem ég er að fara í gegnum hafi hjálpað mér við að glíma við hversdaginn og vinnuna og geri mig sterkari.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap