Toxic relationships
Þessi hefur kannski áttað sig tímanlega? |
Ég rakst á þennan texta um daginn og fannst hann svo djöfull snjall að ég verð að birta hann:
"Put a frog into a vessel fill with water and start heating the water. As the temperature of the water begins to rise, the frog adjust its body temperature accordingly. The frog keeps adjusting its body temperature with the increasing temperature of the water. Just when the water is about to reach boiling point, the frog cannot adjust anymore. At this point the frog decides to jump out. The frog tries to jump but it is unable to do so because it has lost all its strength in adjusting with the rising water temperature. Very soon the frog dies.
What killed the frog? Think about it! I know many of us will say the boiling water. But the truth about what killed the frog was its own inability to decide when to jump out. We all need to adjust with people & situations, but we need to be sure when we need to adjust & when we need to move on. There are times when we need to face the situation and take appropriate actions. If we allow people to exploit us physically, emotionally, financially, spiritually or mentally they will continue to do so. Let us decide when to jump! Let’s jump while we still have the strength."
Ekki veit ég hver samdi þetta, en þetta er mjög skemmtileg samlíking. Það eru ótrúlega margir sem festast í einhverjum eitruðum samböndum og verða samdauna öllu ruglinu. Þetta gengur alltaf lengra og lengra og normalíserast. Fólk er að lokum ófært um að taka þá ákvörðun að stíga út.
Fyrir meðvirka einstaklinga er þetta sérstaklega hættulegt. Ég á það til að láta tuskast með mig og set ekki fótinn niður enda hef ég tilhneygingu til að vilja halda öllum góðum. En því miður fær maður oft á baukinn fyrir að vera góður og geðfelldur náungi. Maður heldur að maður sé að sýna góðmennsku með því að vera að gefa eftir og vera dipló en það er oftast misskilningur. Þetta á við um persónuleg sambönd og nánast undantekingarlaus í atvinnulífinu.
Þess vegna verður maður að læra að sýna tennurnar. Þetta þýðir ekki að maður eigi að fara að bíta fólk hægri vinstri, en fólk verður að átta sig á því að þessar tennur eru ekki bara til skrauts, heldur getur maður notað þær ef nauðsyn krefur.
Ummæli